Um síðuna
Sjálfvirkur verðsamanburður
Hvernig verðin eru sótt
Vefþjónn sækir vörulista beint úr opnum vörulistum verslananna á átta klukkustunda fresti. Ekkert er slegið inn handvirkt og engin verð eru geymd nema þau sem verslanirnar birta sjálfar.
Hvernig vörur eru paraðar saman
Titlar eru greindir niður í vörumerki, bragð, styrk og gerð (mini, slim, large). Vörur sem fá sama lykil lenda í sömu línu í töflunni. Framleiðendur endurnefna bragðtegundir reglulega, til dæmis Lyft Ice Cool sem heitir núna Velo Crispy Peppermint, og þau tilvik eru leyst með uppflettitöflu.
Verð á púða
Verð á púða miðast við staðlaðan fjölda púða í dós fyrir hvert vörumerki, oftast tuttugu. Það er notað til að bera saman dósir í ólíkum stærðum.
Fyrirspurnir og ábendingar
Vantar verslun á listann, er vara ranglega pöruð eða viltu láta fjarlægja verslun? Sendu línu á gumbosveins@gmail.com og það verður lagað.
Fyrirvari
Verð geta breyst milli uppfærslna og sendingarkostnaður er ekki talinn með. Athugaðu alltaf endanlegt verð í körfu hjá versluninni. Nikótínvörur eru eingöngu ætlaðar átján ára og eldri.